| 1.0. |
Á vegum Íþróttasambands Fatlaðra(ÍF) skulu starfa eftirtaldar nefndir.:
Læknaráð, útbreiðslunefnd, fræðslunefnd, aganefnd, og íþróttanefndir einstakra íþróttagreina sem stundaðar eru innan ÍF og skipi formenn þeirra íþróttaráð, ásamt fulltrúum ÍF.
|
| 2.0. |
Hlutverk starfandi nefnda skal vera.:
|
| 2.1. |
LÆKNARÁÐ
Ráðið fjallar um niðurröðun í flokka eftir fötlun samkvæmt alþjóðlegum staðli. Ráðið heldur skýrslur um þá einstaklinga sem flokkaðir hafa verið. Ráðið heldur spjaldskrá á skrifstofu ÍF þar sem upplýsingar um fötlun íþróttamanna, sem flokkaðir hafa veirð eru að finna, þetta skal gert í samráði við starfsmenn ÍF. Ráðið sér um útgéfu keppniskorta. Ráðið heldur kynningarfundi um flokkanir og breytingar á flokkunum sem kunna verða og skulu slíkir fundir vera auglýstir. Þeir sem sitja í ráðinu eiga kost á að sækja ráðstefnur um læknisfræðileg málefni og flokkunarmál, sem haldnar eru á vegum IPC, sækja þarf um slíkt til stjórnar ÍF og Ólympíuráðs. Skilyrt er að skýrslu sé skilað til stjórnar ÍF um efni ráðstefnunnar. Ráðið fjallar um heilsufarslega þýðingu íþrótta fyrir fatlaða og vinnur að kynningu hennar. Ef fulltrúi úr ráðinu er með í keppnisferð á vegu ÍF á hann að aðstoða keppendur, þjálfara og fararstjóra eftir þörfum. Ráðið á að veita ráðgjöf verðandi þjálfun og íþróttaiðkun.
|
| 2.2. |
ÚTBREIÐSLUNEFND
Nefndin starfar með framkvæmdastjóra íþrótta- og útbreiðslusviðs að útbreiðslu og kynningu á íþróttum fyrir fatlaða og aðstoðar við fræðslustarf og námskeiðshald.
Nefndin skiptist í 2 sérráð;
FAGRÁÐ; Skipað fagfólki. Ráðgefandi nefnd. Tengiliðir við faghópa.
KYNNINGARRÁÐ; Skipað fötluðu íþróttafólki. Aðstoð við útbreiðslustarf ÍF.
|
| 2.3. |
FRÆÐSLUNEFND
Nefndin annast fræðslustarfsemi fyrir leiðbeinendur m.a. með námskeiðshaldi og útgáfu á fræðsluefni. Nefndin starfar í samvinnu við framkvæmdastjóra íþrótta- og útbreiðslusviðs ÍF.
|
| 2.4. |
ÍÞRÓTTANEFNDIR EINSTAKRA ÍÞRÓTTAGREINA
Starfssvið nefndanna er að sjá um framkvæmd íþróttamóta í einstöku íþróttagreinum s.s. Íslandsmót, Íslandsleika SO eða önnur þau mót sem stjórn ÍF felur þeim. Nefndirnar semja leikreglur íþróttagreinarinnar sem staðfestast af stjórn ÍF, samkvæmt lögum ÍF. Nefndirnar hafa umsjón með útgáfu á leikreglum í viðkomandi íþróttagrein. Bannað er að breyta leikreglum á miðju keppnistímabili. Íþróttafélög og sambandsaðilar sem vilja leggja fram
breytingatillögu við leikreglur, skulu senda þær stjórn ÍF, sem sendir þær áfram til íþróttanefndar. Íþróttanefndir skulu hafa alþjóðareglur hverrar íþróttagreinar fyrir fatlaða til viðmiðunar við útgáfu leikreglna, þar sem þess er kostur, svo og leikreglur sérsambanda ÍSÍ í þeim íþróttagreinum sem við á. Einnig fjalla þær um brot og ágreining á leikreglum. Nefndirnar sjá um að halda dómaranámskeið í
þeim greinum þar sem þess gerist þörf og sjá um að á mótum séu hæfir dómarar. Nefndirnar gera tillögur um þátttöku í alþjóðlegum mótum annarra en IPC móta og Special Olympics leika. Nefndirnar gera tillögur um keppendur á öll alþjóðleg mót önnur en Barna- og unglingamót Nord-HIF og Special Olympics leika.
Nefndirnar hafa tillögurétt um val á landsliðsþjálfurum í samráði við Ólympíuráð og stjórn ÍF. Við val á fararstjórum á mót erlendis hafa nefndirnar tillögurétt. Endanlegt val þátttakenda, þjálfara og fararstjóra á mót erlendis er verkefni stjórnar ÍF.
|
| 2.5. |
ÍÞRÓTTARÁÐ
Íþróttaráð er skipað formönnum allra íþróttanefnda og er formaður þess og tveir til viðbótar skipaðir af stjórn ÍF. Starfssvið ráðsins er að gera tillögur um hvar og hvenær íþróttamót fara fram. Einnig á ráðið að sinna þeim málefnum sem tengjast sameiginlega íþróttanefndunum, s.s. sameiginleg tillögugerð um þátttöku og val á keppendum á mótum, keppnisgjöld, endurskoðun á reglugerð fyrir Íslandsmót og er umsagnaraðili um sameiginleg mál fyrir stjórn ÍF.
|
| 2.6. |
Nefndin starfar eftir sömu reglum og aganefnd ÍSÍ.
|
| 3.0. |
Hver nefnd skal skipuð minnst þremur mönnum og skipar stjórn ÍF formenn nefndanna. Stjórn ÍF á að hafa skipað formenn nefndanna eigi síðar en á öðrum fundi nýkjörinnar stjórnar eftir sambandsþing ÍF.
|
| 4.0 |
Starfsmenn ÍF/ og eða formenn nefndanna skulu boða til funda.
|
| 5.0 |
Hver nefnd haldi gjörðarbók og gefi skriflega skýrslu til stjórnar fari stjórnin fram á það. Nefndir skulu skila skýrslu um störf sín á sambandsþingi ÍF.
|
| 6.0 |
Stjórn ÍF hefur heimild til að gera einstakar íþróttanefndir fjárhagslega sjálfstæðar með því að úthluta þeim föstum fjárhæðum á ársgrundvelli til að sjá um þá starfsemi sem viðkomandi íþróttanefnd hefur umsjón með.
|
| 7.0 |
Skammtíma nefndir(Ad hoc). Stjórn ÍF hefur heimild til að setja á nýjar nefndir til tímabundinna starfa um afmörkuð vel skilgreind verkefni. Nefndirnar skili skriflegri skýrslu þegar þær ljúka störfum til stjórnar ÍF.
|